Jóhann Berg og Hólmfríður eiga von á þriðja barninu

Frægir fjölga sér | 27. september 2024

Fótboltamaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson landsliðsfyrirliði og eiginkona hans, Hólmfríður Björnsdóttir, lögfræðingur eiga von á barni. Fyrir eiga hjónin tvö börn sem eru fædd árið 2016 og 2020, strák og stelpu. 

Hólmfríður Björnsdóttir og Jóhann Berg Guðmundsson eiga von á þriðja …
Hólmfríður Björnsdóttir og Jóhann Berg Guðmundsson eiga von á þriðja barninu. Hér eru þau með dóttur sína fyrir nokkrum árum. mbl.is

Fótboltamaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson landsliðsfyrirliði og eiginkona hans, Hólmfríður Björnsdóttir, lögfræðingur eiga von á barni. Fyrir eiga hjónin tvö börn sem eru fædd árið 2016 og 2020, strák og stelpu. 

Fótboltamaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson landsliðsfyrirliði og eiginkona hans, Hólmfríður Björnsdóttir, lögfræðingur eiga von á barni. Fyrir eiga hjónin tvö börn sem eru fædd árið 2016 og 2020, strák og stelpu. 

Hjónin sögðu frá því á félagsmiðlum að von væri á þriðja barninu. 

Jóhann og Hólmfríður eru samhent og ganga í takt í lífinu. Þau gengu í hjónaband á Alicante-svæðinu á Spáni árið 2022. 

Jóhann Berg og Hófý Björnsdóttir.
Jóhann Berg og Hófý Björnsdóttir.

Árið 2018 sagði Hólmfríður frá því að Jóhann hefði beðið hennar rétt áður en HM í fótbolta fór fram í Rússlandi. 

Smartland óskar fjölskyldunni til hamingju með stækkandi fjölskyldu! 

mbl.is