Ég naut þeirra forréttinda að fara í bröns á dögunum til Lucasar Keller, kenndur við veitingastaðinn The Coocoo's Nest og Leifs Kolbeinssonar, eiganda La Primavera á Hnoss Bistro sem er staðsettur á jarðhæðinni í Hörpu.
Ég naut þeirra forréttinda að fara í bröns á dögunum til Lucasar Keller, kenndur við veitingastaðinn The Coocoo's Nest og Leifs Kolbeinssonar, eiganda La Primavera á Hnoss Bistro sem er staðsettur á jarðhæðinni í Hörpu.
Ég naut þeirra forréttinda að fara í bröns á dögunum til Lucasar Keller, kenndur við veitingastaðinn The Coocoo's Nest og Leifs Kolbeinssonar, eiganda La Primavera á Hnoss Bistro sem er staðsettur á jarðhæðinni í Hörpu.
Tvíeykið hefur sameinað krafta sína með stórkostlegri útkomu. Þær voru ófáar heimsóknirnar mínar á The Coocoo´s Nest út á Granda þegar veitingastaðurinn var opinn þar í áratug og La Primavera í Marshallshúsi er einn af mínum uppáhaldsveitingastöðum. Þegar ég sá að þessir tveir öðlingar hafa sameinað krafta sína og töfrað fram girnilegan brönsseðil á Hnoss Bistro vissi ég strax að ég yrði að prófa.
Ég get með sanni sagt að sælkerar þessa lands hafa ærna ástæðu til að heimsækja Hnoss og njóta þess sem í boði er.
Brönsinn er í hlaðborðsformi undir sterkum áhrifum frá gamla Coocoo's Nest og því er réttast að tala um Coocoo's Nest „bröns take over“ eins og Leifur kemst svo vel að orði og er brönsinn með ítölskum áhrifum í anda La Primavera. Vert er að minnast á það að Lucas lærði hjá Leif á La Primavera í forðum og er innblásinn af ítalskri matargerð sem hefur ávallt verið í forgrunni þar.
Hlaðborðið var hreint hnossgæti að njóta og allir réttirnir sem ég smakkaði ómótstæðilega góðir. Það gladdi matarhjartað mitt mikið að „Egg Florentina“ er á matseðlinum en það er hleypt egg sem borið er fram á hinu fræga súrdeigsbrauði úr smiðju Lucasar með spínati og gráðostasósu sem á sér enga líka. Þvílík dýrð að njóta.
Annar réttur sem er í miklu uppáhaldi hjá mér er líka í boði en það er shakshuka, þar sem egg og tómatar leika listir sínar við bragðlaukana, syndsamlega góður brönsréttur. Það góða við réttina er að þeir eru bornir fram í litlum fallegum eldföstum mótum, ekki of stórir svo hægt er að fá sér fleiri en einn rétt.
Svo eru það salötin, hvert öðru betra í anda Lucasar. Þar má nefna rauðrófusalat, bygg- og brokkolísalat og nautasalat sem koma öllum skilningarvitunum á flug.
Carpaccio rétturinn er unaðslega góður og osta- og kjötbakkinn á ítalska vísu minnir á menningar- og matarferð til Ítalíu. Með þessum réttum er ótrúlega gott að fá súrdeigsbrauðið fræga sem Lucas hefur margsinnis fengið viðurkenningu fyrir og pestóið sem hann gerir er ómissandi með brauðinu.
Síðan er það mini-burrito baunavefjan sem Lucas gerir betur en nokkur annar. Ómissandi að taka smakk af henni.
Með þessum himnesku réttum er fullkomið að fá sér mímósu eða kampavínsglas.
Eftirréttaborðið fangaði bæði augu og munn að og gerði matarupplifunina enn betri. Hinar frægu pönnukökur eru þar í forgrunni ásamt franskri súkkulaðiköku, ferskum ávöxtum að ógleymdu melónusalatinu með mintunni svo fátt sé nefnt.
Staðsetning staðarins er táknræn og mikil reisn yfir tignarlegum gluggum Hörpunnar sem setja svip sinn á staðinn. Bjart er yfir öllu og þjónustan framúrskarandi í alla staði. Bros og hlýleg framkoma gerði matarupplifunina enn betri.
Ég get svo sannarlega mælt með heimsókn á Hnoss Bistro í bröns og fátt meira gefandi að bjóða fjölskyldunni í bröns í þessu umhverfi og eiga saman góða stund við höfnina í hjarta höfuðborgarinnar í tónlistarhöll okkar Íslendinga þar sem töfrarnir gerast.