Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir ljóst hvað Hassan Nasrallah, fyrrverandi leiðtogi Hisbollah-hryðjuverkasamtakanna, hefur ástundað en hún hefur verulegar áhyggjur af stigmögnun í Mið-Austurlöndum.

Þetta kemur fram í samtali hennar við mbl.is eftir að hún flutti ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í kvöld.
„Ég hef gríðarlegar áhyggjur af stigmögnun og það er ekki úr lausu lofti gripið,“ segir Þórdís.
Hassan Nasrallah var drepinn í árás Ísraelshers á höfuðstöðvar samtakanna í Beirút í gærkvöldi.
Þórdís kveðst sérstaklega heyra af áhyggjum fólks í óformlegum samtölum á þinginu þar sem menn spyrja sig meðal annars hvernig brugðist verði við og „með hvaða hætti mun Íran bregðast við?“
Hún segir að ef menn missi enn frekar stjórn á atburðarásinni þá geti átökin orðið á öðrum skala en við höfum séð hingað til og hefur hún verulegar áhyggjur af því.
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði fyrr í dag að drápið á Nasrallah væri réttlætisaðgerð fyrir fórnarlömb hryðjuverkaleiðtogans.
Tekur þú undir þessi orð Bandaríkjaforseta?
„Auðvitað liggur fyrir fyrir hvað Hisbollah stendur og hvað hann og aðrir – sem er líka búið að fella – hafa ástundað og gert. Mér finnst aðalatriðið vera að ná einhverri stjórn á þessari atburðarás og hvetja til stillingar vegna þess að það er ekki hægt að taka skrefin fram á við nema með því að kæla ástandið,“ segir Þórdís en bætir við:
„Ég hins vegar átta mig vel á því að það eru þessir stærstu leikendur og stærstu kraftar sem munu hafa áhrif á það hvernig næstu dagar og skref verða. En þegar að stigmögnun raungerist þá er það þannig að það eru almennir borgarar sem líða langmest fyrir það,“ segir hún.