Hisbollah–samtökin gerðu tvær árásir í norðurhluta Ísrael í dag.
Hisbollah–samtökin gerðu tvær árásir í norðurhluta Ísrael í dag.
Hisbollah–samtökin gerðu tvær árásir í norðurhluta Ísrael í dag.
Árásirnar voru gerðar á svæði sem hryðjuverkasamtökin hafa gert nokkrar árásir á í liðinni viku, þar á meðal á borgina Safed.
Í yfirlýsingu frá Hisbollah kom fram að „sprengjuregni“ hafi verið varpað á Safed og annað svæði „til varnar Líbanon og íbúum landsins“.
Þá sagði að árásirnar hefðu verið gerðar til þess að bregðast við árásum Ísraela á borgir, þorp og óbreytta borgara.
Heilbrigðisráðuneyti Líbanon greinir frá því að fleiri en 700 hafi látið lífið í árásum Ísraelshers í vikunni.
Ísraelsher hefur gert fjölda árása á Líbanon í dag og segja þær beinast að vopnabúrum Hisbollah.