Ástralska leikkonan Rebel Wilson gekk í hjónaband með athafnakonunni Ramonu Agruma við stórglæsilega athöfn á ítölsku eyjunni Sardiníu á laugardag.

Wilson og Agruma byrjuðu að stinga nefjum saman síðla árs 2021 og opinberuðu samband sitt tæpu ári síðar. Leikkonan fór svo á skeljarnar á sjálfan Valentínusardaginn í fyrra og bað um hönd Agruma fyrir framan kastala Þyrnirósar í Disneylandi.
Hjónin deildu stórglæsilegum myndum frá brúðkaupsdeginum á Instagram.
Wilson eignaðist dóttur með hjálp staðgöngumóður í upphafi sambands þeirra og hefur Agruma tekið mikinn þátt í uppeldi stúlkunnar.
Leikkonan bættist í sífellt vaxandi hóp Íslandsvina þegar hún heimsótti landið í ágúst 2018. Hún mætti aftur á klakann tæpum fjórum árum seinna og þá ásamt Agruma.