Hvetja fleiri íbúa til að yfirgefa heimili sín

Ísrael/Palestína | 2. október 2024

Ísraelsher hefur hvatt íbúa fleiri þorpa í suðurhluta Líbanons til að yfirgefa heimili sín. Sams konar ákall kom í gær eftir að herinn tilkynnti um landhernað í Líbanon.

Slökkviliðstmenn að störfum í hverfinu Hadath í suðurhluta Líbanons eftir …
Slökkviliðstmenn að störfum í hverfinu Hadath í suðurhluta Líbanons eftir loftárás Ísraelshers í morgun. AFP

Ísraelsher hefur hvatt íbúa fleiri þorpa í suðurhluta Líbanons til að yfirgefa heimili sín. Sams konar ákall kom í gær eftir að herinn tilkynnti um landhernað í Líbanon.

Ísraelsher hefur hvatt íbúa fleiri þorpa í suðurhluta Líbanons til að yfirgefa heimili sín. Sams konar ákall kom í gær eftir að herinn tilkynnti um landhernað í Líbanon.

„Yfirgefið heimilin ykkar nú þegar. Farið varlega, þið megið ekki fara í suðurhlutann. Þið gætuð lent í hættu ef þið farið í þá áttina,“ sagði talsmaður hersins.

Hann hvatti íbúa til að yfirgefa yfir 20 þorp og bæi til viðbótar í suðurhluta Líbanons.

mbl.is