Innsláttarvilla var í tilkynningu sem birtist á Instagram-síðu bresku konungsfjölskyldunnar í gærdag, en fulltrúi konungsfjölskyldunnar greindi frá því að Beatrice prinsessa ætti von á sínu öðru barni ásamt eiginmanni sínum, Edoardo Mapelli Mozzi.

Í færslunni, sem var snögglega fjarlægð og endurbirt skömmu síðar, var konunglegur titill Beatrice, sem er dóttir Andrews prins og Söruh Ferguson, misritaður og var hún titluð sem „Her Royal Highess” í stað „Her Royal Highness”.
Vökul augu blaðamanna breska tímaritsins Hello! tóku eftir villunni.
Nýjasti meðlimur konungsfjölskyldunnar er væntanlegur með vorinu 2025.