Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein, fagnaði 25 ára afmæli í gær, mánudaginn 1. október. Af því tilefni var efnt til mikils fagnaðar á Hilton Reykjavík Nordica á laugardag, en félagið hélt viðburðinn Lífið er núna festival á hótelinu.

Viðburðurinn, sem er haldinn annað hvert ár, var extra glæsilegur í tilefni af afmæli Krafts, en dagurinn hófst með fjölbreyttum vinnustofum þar sem félagsmenn hlýddu meðal annars á fyrirlestur Haralds Inga Þorleifssonar athafnamanns. Gleðin náði þó hámarki á VOX Club um kvöldið þegar aðalsöngvari Stuðlabandsins, Magnús Kjartan Eyjólfsson, steig á svið.
Kraftur var formlega stofnað 1. október 1999. Persónuleg reynsla nokkurra ungra eldhuga sem höfðu greinst með krabbamein eða voru aðstandendur varð til þess að félagið var stofnað. Þessa persónulegu reynslu ákvað hópurinn að nýta til góðs fyrir aðra sem síðar myndu greinast.
„Það er afstæð staðreynd að fyrir 25 árum síðan var ekki til stuðningsnet fyrir unga sem greinast með krabbamein og aðstandendur. Að heyja baráttu við krabbamein reynir á alla. Jafningjastuðningur sem við getum veitt hvert öðru í þessari baráttu gefur okkur þann kraft sem þarf til að lifa með eða komast í gegnum veikindi okkar,“ segir Viktoría Jensdóttir, formaður Krafts.