Mál Mariusar Høiby, sonur Mette Marit krónprinsessu Noregs, heldur áfram að taka á sig mynd og nú herma heimildir Se & Hør að þrjár manneskjur til viðbótar hafi stigið fram með ásakanir á hendur honum.

Stutt er síðan Maríus var handtekinn fyrir að beita fyrrverandi kærustu sína ofbeldi og brjóta nálgunarbann.
Høiby er sakaður um ofbeldi í garð tveggja náinna vina, fyrrverandi kærustu sína Juliane Snekkestad og svo Noru Haukland. Þá á hann einnig að hafa ógnað annarri manneskju.
Mette Marit og Hákon krónprins hafa ekki tjáð sig um málið.
Þá er sagt að það sé engin tilviljun að herþjónusta hans í norðurhluta Noregs hafi verið framlengd frá 12 mánuðum upp í 15. Þetta hafi verið eitthvað sem konungsfjölskyldan hafi þrýst á um.
Í síðasta mánuði braust mótorhjólagengi inn í Skaugum, heimili konungsfjölskyldunnar, eftir að Høiby hélt villt partý þar. Ýmsum verðmætum var stolið.