Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla hjá ISAVIA, segir að enn eigi að þrengja að Reykjavíkurflugvelli vegna byggðar í Skerjafirði.

Þetta segir Sigrún Björk í hlaðvarpsþættinum Flugvarpið.
„Uppbyggingin er öll utan flugvallarins og það er verið að þrengja að honum. Nú erum við komin með tilmæli frá innviðaráðuneytinu að fara í að færa þessa girðingu svo að borgin geti byrjað sína uppbyggingu í Skerjafirði,“ segir Sigrún Björk meðal annars í viðtalinu.
Hún segir að ISAVIA hafi varað við afleiðingunum og segir að þetta sé ekki góð hugmynd þar sem þessi framkvæmd muni þrengja töluvert að flugvellinum.
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður fjárlaganefndar, sagði við mbl.is í gær að verja þurfi Reykjavíkurflugvöll fyrir stöðugum árásum.
„Mér skilst að það hafi borist sú skipun til ISAVIA-innanlandsflugs frá innviðaráðherra um að færa girðinguna til að undirbúa að hægt sé að byggja þarna. Ef menn koma ekki með viðbragð við þessu núna þá veit ég ekki hvenær menn ætla að koma með viðbragð um að verja flugvöllinn fyrir þessum árásum,“ sagði Njáll Trausti.