Hákon um Véstein: „Hann dáleiðir mann!“

Dagmál | 7. október 2024

Hákon um Véstein: „Hann dáleiðir mann!“

„Vésteinn er ótrúlegur náungi,“ sagði skotíþróttamaðurinn og ólympíufarinn Hákon Þór Svavarsson í Dagmálum.

Hákon Þór, sem er 46 ára gamall, fór á sína fyrstu Ólympíuleika í sumar í París í Frakklandi þar sem hann náði bestum árangri Íslendings frá upphafi í leirdúfuskotfimi þegar hann fékk 116 stig og hafnaði í 23. sæti.

Ekki trúgjarn maður

Hákon vann náið með Vésteini Hafsteinssyni, afreksstjóra ÍSÍ, í aðdraganda Ólympíuleikanna, og ber honum vel söguna.

„Ég er ekki mjög trúgjarn en ég trúi öllu sem hann segir,“ sagði Hákon.

„Hann í dáleiðir mann! Starfið sem ÍSÍ er að vinna, skotíþróttasambandið og héraðssambandið, er ótrúlegt. Þetta er mjög vanmetið starf og fólk er oft og tíðum ósýnilegt í því sem það er að gera,“ sagði Hákon meðal annars.

Viðtalið við Hákon Þór í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Vésteinn Hafsteinsson og Hákon Þór Svavarsson.
Vésteinn Hafsteinsson og Hákon Þór Svavarsson. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is