Í gærkvöldi var haldinn hátíðarkvöldverður í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn til heiðurs forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur og eiginmanni hennar, Birni Skúlasyni.

Hátíðarkvöldverðurinn sem dönsku konungshjónin, Friðrik Danakonungur og María drottning, héldu til heiðurs íslensku forsetahjónanna var hinn glæsilegasti í alla staði.
Borðskreytingarnar, sérstaklega blómaskreytingarnar sem voru á hátíðarborði konungshjónanna fönguðu athygli gesta og skörtuðu sínu fegursta.
Haustlitirnir voru í forgrunni í blómaskreytingunum og innblásturinn var fenginn af veggteppum Bjørn Nørgaard í Riddarahöllinni í Kristjánsborgarhöll.
Blómaskreytingarnar samanstóðu af stórum, kringlóttum blómum í rauðum, bleikum og fjólubláum mildum tónum. Blómategundirnar voru allt frá rósum og chrysanthemum til hortensía og clematis, sem prýddu hátíðarborð Friðriks konungs á hátíðarkvöldverðinum.
Hennar hátign drottningin hjálpaði til við að velja haustblómin sem prýddu hátíðarsalinn. Á þeim má sjá hversu gott auga drottning hefur fyrir skreytingum og að nýta náttúruna og lifandi blóm til að gleðja augað.
Borðbúnaðurinn var fágaður, stílhreinn og fallegur með eindæmum, grunnliturinn var hvítur og gyllt laufblöð prýddu diskana. Hnífapörin voru líka einstaklega vel valinn, þarf var silfri og gull blandað saman. Skjaldarmerki konungsfjölskyldunnar var í forgrunni á matseðlinum og einnig á hluta borðbúnaðarins.