Heimagerð Húsó-blómkálssúpa slær í gegn

Uppskriftir | 12. október 2024

Heimagerð Húsó-blómkálssúpa slær í gegn

Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans deilir uppskrift af gómsætri blómkálssúpu. Súpan iljar á köldum haustdögum og er á sama tíma ljúffeng. 

Heimagerð Húsó-blómkálssúpa slær í gegn

Uppskriftir | 12. október 2024

Heimagerð blómkálssúpa er herramannsmatur.
Heimagerð blómkálssúpa er herramannsmatur. Ljósmynd//Aðsend

Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans deilir uppskrift af gómsætri blómkálssúpu. Súpan iljar á köldum haustdögum og er á sama tíma ljúffeng. 

Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans deilir uppskrift af gómsætri blómkálssúpu. Súpan iljar á köldum haustdögum og er á sama tíma ljúffeng. 

Blómkálssúpa passar sem kvöldmatur en það má líka bera hana fram sem forrétt ef gesti ber að garði.

Matarboð í heimahúsum njóta mikilla vinsælda um þessar mundir og því ekki úr vegi að búa til matarmikla súpu frá grunni og slá þannig um sig. 

Blómkálssúpa Húsó

  • 1 L vatn
  • ½ blómkálshöfuð
  • 50 g smjör
  • 50 g hveiti
  • 2 kjötkraftsteningar
  • ½ tsk. laukduft
  • 1 dl rjómi eða matreiðslurjómi
  • Salt pipar

Aðferð: 

  1. Hreinsið og takið blómkálið í sundur í hæfilega súpubita.
  2. Látið í sjóðandi vatn og sjóðið í 2 mínútur.
  3. Veiðið upp úr pottinum og látið bíða í lokuðu íláti.
  4. Bætið kryddi og kjötkrafti saman við soðið.
  5. Blandið hveiti saman við smjörið þannig að úr verði bolla, blandið með gaffli eða píski.
  6. Látið smjörbolluna út í soðið og bræðið bolluna við vægan hita þar til bollan jafnast út.
  7. Bætið blómkáli og rjómanum út í og látið sjóða í 5 mínútur.
  8. Bragðbætið eftir smekk, notið salt og pipar til þess.
  9. Ef súpan er of þykk getið þið bætt í hana soði/mjólk eða rjóma.
mbl.is