Kræsilegar kartöfluvöfflur sem seðja hungrið

Uppskriftir | 13. október 2024

Kræsilegar kartöfluvöfflur sem seðja hungrið

Staldraðu aðeins við næst þegar þú ætlar að henda öllum soðnu kartöflunum sem urðu afgangs í kvöldmatnum. Þú gætir nefnilega verið með efnivið í heila máltíð í höndunum sem annars hefði farið til spillis.

Kræsilegar kartöfluvöfflur sem seðja hungrið

Uppskriftir | 13. október 2024

Kartöfluvöfflur eru saðsamar og krassandi.
Kartöfluvöfflur eru saðsamar og krassandi. Skjáskot/Instagram

Staldraðu aðeins við næst þegar þú ætlar að henda öllum soðnu kartöflunum sem urðu afgangs í kvöldmatnum. Þú gætir nefnilega verið með efnivið í heila máltíð í höndunum sem annars hefði farið til spillis.

Staldraðu aðeins við næst þegar þú ætlar að henda öllum soðnu kartöflunum sem urðu afgangs í kvöldmatnum. Þú gætir nefnilega verið með efnivið í heila máltíð í höndunum sem annars hefði farið til spillis.

Kartöfluvöfflur eru krassandi og bragðgóðar og henta vel sem máltíð sem hægt er að bjóða upp hvenær dags sem er; í morgunverð, hádegisverð, kvöldverð eða jafnvel sem millimál.

Grunnhráefni vafflanna eru kartöflur en það gerir þér kleift að leika þér með önnur hráefni og álegg í bland því flest allt getur passað með kartöflum.

Allt sem hugurinn girnist.

Svo það skemmir ekki fyrir að vöfflurnar er sérstaklega einfalt að matbúa og tekur undirbúningurinn stuttan tíma.

Matarsóun á heimilum nú til dags er töluvert mikil. Þá er tilvalið að reyna að hugsa sig tvisvar sinnum um áður en maður hendir afgangsmat beinustu leið í tunnuna. Það er ekki einungis umhverfisvænt heldur getur það líka leitt af sér drjúgan sparnað í matarinnkaupum.

Kartöfluvöfflur 

Uppskriftin gefur fjórar vöfflur

  • 8 meðalstórar soðnar kartöflur
  • 1 meðalstór laukur
  • 2 egg
  • 4 msk hveiti
  • 1 tsk matarolía
  • Salt, pipar eða krydd eftir smekk

Aðferð:

  1. Hýðið flysjað af kartöflunum.
  2. Kartöflurnar stappaðar vel saman í skál þar til þær eru orðnar kekklausar.
  3. Laukur smátt saxaður og bætt út í skálina.
  4. Eggjum og olíu bætt við blönduna og hrært vel saman við.
  5. Kryddblöndu bætt við eftir smekk.
  6. Vöfflujárnið er svo forhitað áður en kartöflublöndunni er hellt á járnið.
  7. Einnig er gott að úða Pam-olíu yfir járnið svo vöfflurnar brenni síður við.
  8. Þegar vöfflurnar hafa náð gullbrúnum lit eru þær tilbúnar.
  9. Þegar vöfflurnar eru fullbakaðar er tími til að njóta þeirra.

Tilvalið er að spæla egg og sveppi setja ofan á þær, ásamt grænmeti að vild og hvítlaukssósu.

Verði þér að góðu!

Hægt er að leika sér með hráefni og álegg og …
Hægt er að leika sér með hráefni og álegg og búa til mismunandi bragð. Skjáskot/Instagram
mbl.is