María Thelma og Steinar giftu sig í Hallgrímskirkju

Brúðkaup | 14. október 2024

María Thelma og Steinar giftu sig í Hallgrímskirkju

Leikkonan María Thelma Smáradóttir og Steinar Thors viðskiptastjóri hjá Straumi gengu í hjónaband á laugardaginn. Giftingin sjálf fór fram í Hallsgrímskirkju og svo var skundað á Grand Hótel á eftir þar sem ráðahagnum var fagnað. 

María Thelma og Steinar giftu sig í Hallgrímskirkju

Brúðkaup | 14. október 2024

María Thelma Smáradóttir og Steinar Thors gengu í hjónaband á …
María Thelma Smáradóttir og Steinar Thors gengu í hjónaband á laugardaginn. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Leikkonan María Thelma Smáradóttir og Steinar Thors viðskiptastjóri hjá Straumi gengu í hjónaband á laugardaginn. Giftingin sjálf fór fram í Hallsgrímskirkju og svo var skundað á Grand Hótel á eftir þar sem ráðahagnum var fagnað. 

Leikkonan María Thelma Smáradóttir og Steinar Thors viðskiptastjóri hjá Straumi gengu í hjónaband á laugardaginn. Giftingin sjálf fór fram í Hallsgrímskirkju og svo var skundað á Grand Hótel á eftir þar sem ráðahagnum var fagnað. 

Veislan var hin glæsilegasta. Boðið var upp á ljúffengan mat og drykki. Margrét Rán tónlistarkona kom og tókHigher og svo mætti sjálfur Páll Óskar og hélt uppi stuðinu. Með honum á sviðinu voru tveir dansarar. 

Giftingin fór fram í Hallgrímskirkju.
Giftingin fór fram í Hallgrímskirkju. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Rómantískt bónorð 

Steinar bað Maríu Thelmu í jólaþorpinu í Hafnarfirði skömmu fyrir jólin 2022.

„Jóla­göngu­túr­inn á Thorsplan­inu í Hafnar­f­irði tók ansi óvænta stefnu þegar minn allra besti fór á skelj­arn­ar og að sjálf­sögðu sagði ég JÁ! Að okk­ur óaf­vit­andi stóð kona álengd­ar og festi augna­blikið á mynd­band! Við eydd­um svo rest­inni af deg­in­um út um all­ar triss­ur þar sem við skáluðum og fögnuðum ást­inni,“ skrif­ar María Thelma.

Smartland óskar hjónunum til hamingju með giftinguna! 

mbl.is