Færustu matreiðslumenn landsins buðu til framúrskarandi matarupplifunnar á veitingastaðnum Eiríksdottir í Grósku síðastliðna helgi.
Færustu matreiðslumenn landsins buðu til framúrskarandi matarupplifunnar á veitingastaðnum Eiríksdottir í Grósku síðastliðna helgi.
Færustu matreiðslumenn landsins buðu til framúrskarandi matarupplifunnar á veitingastaðnum Eiríksdottir í Grósku síðastliðna helgi.
„Við erum í skýjunum með kvöldið. Þetta tókst mjög vel í alla staði og góð stemning var í salnum. Maður kaupir ekki þessa matarupplifun út í búð, það er á hreinu,“ segir Friðgeir Ingi Eiríksson einn eiganda veitingastaðarins Eiríksdóttir og þeirra sem stóð að styrktarsamkomunni.
„Þetta verður ekki flottara, að ná öllum þessum snillingum saman og halda þennan galakvöldverð er náttúrlega bara rosalegt. Hér var komið saman safn af bestu kokkum landsins í eldhúsinu á veitingastaðnum Eiríksdottir að elda keppnisréttina sína úr Bocuse d´Or. Það var boðið upp á frábær vín sem pöruðu voru saman með öllum þessum glæsilegu réttum sem voru framreiddir sem var punkturinn yfir i-ið,“ segir Friðgeir og bætir við að þetta verði framvegis árlegt hjá þeim en takmarkaður fjöldi kemst að eða 150 manns.
Innan teymisins voru fyrrverandi keppendur stærstu matreiðslukeppni í heimi Bocuse d’Or sem verður haldin næst í Lyon í Frakklandi í janúar á næsta ári.
Boðið var upp á sannkallaðan stjörnumatseðil sem sjaldan hefur sést og matargestirnir höfðu orð á því að þetta hafi verið matarupplifun sem erfitt er að toppa. Mikið var um dýrðir og diskarnir var fagurlega skreytir með réttum sem fæstir hafa fengið að njóta.
Veislan var einmitt haldin til styrktar næstu Bocuse d’Or keppni þar sem Sindri Guðbrandur Sigurðsson matreiðslumaður og Kokkur ársins 2023 mun keppa fyrir Íslands hönd.
Bocuse d’Or er allra virtasta matreiðslukeppni sem haldin er í heiminum og verið haldin síðan 1987 í Lyon Frakklandi, og komast færri þjóðir að enn vilja. 24 þjóðir fá keppnisrétt eftir að hafa komist í gegn úr forkeppni í sinni heimsálfu. Bocuse d’Or er kölluð hin eina sanna heimsmeistarakeppni í matreiðslu.