Þessi sex flugu áfram í nemakeppninni

Bakstur | 15. október 2024

Þessi sex flugu áfram í nemakeppninni

Dagana 8. og 9. október síðastliðna fór fram undankeppni í hinni árlegu nemakeppni Kornax, sem hefur verið haldin frá árinu 1998.

Þessi sex flugu áfram í nemakeppninni

Bakstur | 15. október 2024

Þessi sex komust áfram í Nemakeppni Kornax. Tinna Sædis Ægisdóttir …
Þessi sex komust áfram í Nemakeppni Kornax. Tinna Sædis Ægisdóttir frá Gulla Arnari, Anna Kolbrún Stefánsdóttir frá Gulla Arnari, Jean Louis Aimé Alexandrenne frá Gæðabakstri, Kara Sól Ísleifsdóttir frá Mosfellsbakaríi, Karen Lilja Sveinsdóttir frá Gulla Arnari og Guðbjörg Skarphéðinsdóttir frá Kökulist. Samsett mynd/Árni Þorvarðarson

Dagana 8. og 9. október síðastliðna fór fram undankeppni í hinni árlegu nemakeppni Kornax, sem hefur verið haldin frá árinu 1998.

Dagana 8. og 9. október síðastliðna fór fram undankeppni í hinni árlegu nemakeppni Kornax, sem hefur verið haldin frá árinu 1998.

Nemunum var skipt í þrjá hópa og fengu þeir úthlutað það verkefni að baka tíu maltbrauð, þrjár útfærslur af vínarbrauði og að útbúa sérstakt sýningarstykki. Verkefnin reyndu á bæði tækni og sköpunargáfu og það var mikil spenna í loftinu þegar verk nemanna voru dæmd af dómnefndinni.

Sýna mikla fagmennsku og listfengi

„Það er einmitt þetta sem gerir keppnina svo einstaka og skemmtilega, að sjá hvernig keppendur þroskast og dafna á ótrúlega stuttum tíma. Margir koma í keppnina með efasemdir um eigin hæfileika og telja sig ekki eiga erindi á þennan vettvang, en innan skamms tíma eru þeir komnir á allt annan stað. Að lokum skila þeir af sér verkum sem sýna mikla fagmennsku og listfengi. Þetta ferli er ekki aðeins mikilvægt fyrir nemana sjálfa, heldur líka fyrir bakaraiðnaðinn á Íslandi, þar sem það hjálpar til við að móta framtíðarbakara með framúrskarandi hæfileika. Við megum sannarlega vera stolt af því að eiga svona hæfileikaríka tilvonandi bakara sem framtíðin á eftir að njóta góðs af,“ segir Árni Þorvarðarson, bak­ari og fag­stjóri við Hót­el- og mat­væla­skól­ann í Kópa­vogi.

Þátttakendurnir allir í ár, samtals 18 bakaranemar.
Þátttakendurnir allir í ár, samtals 18 bakaranemar. Ljósmynd/Árni Þorvarðarson

Keppnin var haldin í samstarfi við Hótel- og matvælaskólann, Kornax, Klúbb bakarameistara og Landssamband bakarameistara.

„Eins og fyrr segir hefur keppnin verið fastur liður nánast á hverju ári í 26 ár. Flestir af okkar bestu bökurum hafa tekið þátt í henni á einhverjum tímapunkti í sinni menntun. Keppnin er því orðin mikilvægur viðburður innan bakaraiðnaðarins og hefur skipað sér sess sem vettvangur til að sýna fram á hæfni, sköpunarkraft og fagmennsku þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref í faginu,“ bætir Árni við.

6 bestu komust áfram í úrslitin

Alls hófu 18 bakaranemar keppnina og eftir hörkukeppni komust 6 bestu áfram í úrslitin, sem fara fram að viku liðinni. Í úrslitunum þurfa keppendur að bæta við tveimur nýjum verkefnum og jafnframt betrumbæta verk þau sem þeir skiluðu í undankeppninni. Það verður því spennandi að sjá hvernig þeir glíma við þessi krefjandi verkefni og hvaða hugmyndir og útfærslur þeir koma með að þessu sinni.

Keppendur sem komust í úrslit eru:

  • Anna Kolbrún Stefánsdóttir frá Gulla Arnari
  • Jean Louis Aimé Alexandrenne frá Gæðabakstri
  • Kara Sól Ísleifsdóttir frá Mosfellsbakaríi
  • Karen Lilja Sveinsdóttir frá Gulla Arnari
  • Tinna Sædís Ægisdóttir frá Gulla Arnari
  • Guðbjörg Skarphéðinsdóttir frá Kökulist

Úrslitin fara fram dagana 16. og 17. október næstkomandi og afrakstur keppenda verður til sýnis næstkomandi fimmtudag, 17. október, klukkan 16 í matsal Hótel- og matvælaskólans.

Munu sýna afrakstur sinn

„Þar munu keppendur sýna afrakstur sinn og við hvetjum alla áhugasama til að koma og njóta þess að sjá baksturinn í sinni fegurstu mynd. Það er ekki á hverjum degi sem við fáum tækifæri til að sjá framtíðarmeistara baksturs á Íslandi koma fram á þennan hátt, og það lofar góðu fyrir framtíðina að sjá þessa hæfileikaríku nema búa til verk sem blanda saman tækni, sköpun og list,“ segir Árni að lokum.

Hér er Tinna Sædís Ægisdóttir með hlaðborðið sitt, kræsingarnar fallegu.
Hér er Tinna Sædís Ægisdóttir með hlaðborðið sitt, kræsingarnar fallegu. Ljósmynd/Árni Þorvarðarson
Guðbjörg Skarphéðinsdóttir við sínar glæsilegu kræsingar.
Guðbjörg Skarphéðinsdóttir við sínar glæsilegu kræsingar. Ljósmynd/Árni Þorvarðarson
Karen Lilja Sveinsdóttir við sitt glæsilega hlaðborð.
Karen Lilja Sveinsdóttir við sitt glæsilega hlaðborð. Ljósmynd/Árni Þorvarðarson
Kara Sól Ísleifsdóttir við sitt kræsingarborð.
Kara Sól Ísleifsdóttir við sitt kræsingarborð. Ljósmynd/Árni Þorvarðarson
Jean Louis Aimé Alexandrenne við sitt glæsilega hlaðborð.
Jean Louis Aimé Alexandrenne við sitt glæsilega hlaðborð. Ljósmynd/Árni Þorvarðarson
Anna Kolbrún Stefánsdóttir við sitt glæsilega hlaðborð.
Anna Kolbrún Stefánsdóttir við sitt glæsilega hlaðborð. Ljósmynd/Árni Þorvarðarson
Þvílík fegurð hjá bakaranemunum, bæði brauð og bakkelsi sem fangar …
Þvílík fegurð hjá bakaranemunum, bæði brauð og bakkelsi sem fangar augu og munn. Samsett mynd
mbl.is