Sýning franska tískuhússins Saint Laurent fyrir vorið/sumarið 2025 fór fram í París á dögunum. Sýningarinnar er ávallt beðið með mikilli eftirvæntingu enda er fremsta röð yfirleitt fyllt stórstjörnum og fötin glæsileg. Listrænn stjórnandi Saint Laurent er Anthony Vaccarello og hefur hann gegnt því starfi frá árinu 2016.

Kvenleg snið, stuttir kjólar, mittisbelti og þröngir jakkar hafa einkennt fatnað Vaccarello fyrir Saint Laurent síðustu ár. Þó að þannig fatnaður hafi vissulega verið til staðar í línunni þá var annað mun meira áberandi og er augljóst að hann hafi verið undir áhrifum frá karlatísku tíunda áratugarins.
Það mætti segja að Vaccarello hafi komið með nýja ofurkonubúninginn; víðar dragtir, hvítar bómullarskyrtur sem hnepptar voru upp í háls og bindi. Stór, áberandi gleraugu og hárið smurt aftur. Hann hætti ekki þar heldur voru stórir leðurjakkar settir yfir og flugmannasólgleraugum skellt á nefið.
Þetta er orkan sem pólitíkusar ættu að taka með sér inn í komandi kosningatörn.