Innköllun á Ora kjötsúpu

Innkallanir | 16. október 2024

Innköllun á Ora kjötsúpu

Niðursuðuverksmiðjan Ora vekur athygli á að Ora kjötsúpa í hálfri dós inniheldur ofnæmis- og óþolsvalda soja og mjólk án þess að það komi fram á umbúðum.

Innköllun á Ora kjötsúpu

Innkallanir | 16. október 2024

Ora kjötsúpa
Ora kjötsúpa Ljósmynd/0ra

Niðursuðuverksmiðjan Ora vekur athygli á að Ora kjötsúpa í hálfri dós inniheldur ofnæmis- og óþolsvalda soja og mjólk án þess að það komi fram á umbúðum.

Niðursuðuverksmiðjan Ora vekur athygli á að Ora kjötsúpa í hálfri dós inniheldur ofnæmis- og óþolsvalda soja og mjólk án þess að það komi fram á umbúðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ora en þar segir að fyrirtækið innkalli vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis. Innköllunin á við um eitt lotunúmer af vörunni.

Upplýsingar um vöruna:

Vörumerki: Ora
Strikamerki: 5 690519 222304
Vöruheiti: Kjötsúpa ½ dós niðursoðin
Framleiðandi: Ora (Myllan-Ora ehf)
Lotunúmer: L101257 / best fyrir dagsetning: 19.09.2028
Dreifing: Heildsalan OJK – Ísam Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík

„Varan er skaðlaus þeim sem ekki eru með ofnæmi eða óþol fyrir innihaldsefnum hennar. Þeir sem eiga umrædda vöru og eru með ofnæmi eða óþol fyrir soja og / eða mjólk eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga eða skila henni hjá OJK – Ísam eða þar sem varan var keypt,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

mbl.is