Vilja stokka upp öryggisþjónustuna

Vilja stokka upp öryggisþjónustuna

Sjálfstæð nefnd hefur kallað eftir því að bandaríska öryggisþjónustan Secret Service verði stokkuð upp. Stofnunin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að koma ekki í veg fyrir banatilræði gegn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í júlí.

Vilja stokka upp öryggisþjónustuna

Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 | 17. október 2024

Donald Trump skömmu eftir að reynt var að ráða hann …
Donald Trump skömmu eftir að reynt var að ráða hann af dögum. AFP/Rebecca Droke

Sjálfstæð nefnd hefur kallað eftir því að bandaríska öryggisþjónustan Secret Service verði stokkuð upp. Stofnunin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að koma ekki í veg fyrir banatilræði gegn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í júlí.

Sjálfstæð nefnd hefur kallað eftir því að bandaríska öryggisþjónustan Secret Service verði stokkuð upp. Stofnunin hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að koma ekki í veg fyrir banatilræði gegn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í júlí.

„Skrifræði, sinnuleysi og kyrrstaða einkennir þjónustuna,” sagði í bréfi nefndarinnar til Alejandro Mayorkas, þjóðaröryggisráðherra í Bandaríkjunum.

Bréfinu fylgdi 52 blaðsíðna skýrsla fjögurra manna nefndarinnar.

„Grundvallarbreytingar þarf að gera á þjónustunni til að hún sem stofnun geti sinnt verkefnum sínum,“ sagði einnig í bréfinu.

Byssukúla strauk hægra eyra Trumps eftir að tvítugur byssumaður reyndi að ráða hann af dögum á kosningafundi í ríkinu Pennsylvaníu.

Einn áhorfandi lést og byssumaðurinn, Thomas Crooks, var skotinn til bana af leyniskyttum Secret Service.

mbl.is