Yngsti sonur Beckham-hjónanna, hinn 19 ára gamli Cruz, er kominn með kærustu. Sú heppna heitir Jackie Apostel og er brasilísk söngkona. Parið var myndað í bak og fyrir þegar það sást spandera peningum á vinsælli verslunargötu í Beverly Hills á þriðjudag.

Ástin skein af parinu sem gekk hönd í hönd niður verslunargötuna og stoppaði reglulega til að kyssast.
Fyrst heyrðist af sambandi Beckham og Apostel, sem er sögð vera 11 árum eldri en sonur stjörnuhjónanna David og Victoriu Beckham, í sumar þegar þau sáust kyssast á Glastonbury-tónlistarhátíðinni í Somerset á Englandi síðla júnímánaðar.
Mikið hefur verið rætt og ritað um líkindi Apostel og móður Beckham, söngkonuna og fatahönnuðinn Victoriu Beckham, en mörgum þykir nýja kærastan skuggalega lík fyrrverandi Spice Girls-meðlimnum. Apostel, líkt og móðir Beckham, gerði garðinn frægan með stúlknasveit, en Apostel var meðlimur í poppsveitinni Schutz Band.