Framboð í komandi alþingiskosningum 30. nóvember eru farin að skýrast eftir öra atburðarás síðustu daga. Aðeins 43 dagar eru til kosninga eftir að ríkisstjórnin lagði formlega upp laupana í gær og starfsstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins tók til valda.

Tíminn er því naumur fyrir stjórnmálaflokka landsins til að setja saman framboðslista og hefja kosningabaráttu. Í ljósi aðstæðna gefst flestum flokkum ekki tími til þess að boða til hefðbundins prófkjörs eins og er vaninn í aðdraganda kosninga og munu uppstillingarnefndir víða skipa listana þó að í einhverjum tilvikum kunni að vera kosið um efstu menn í kjördæmisráðum.
Píratar munu þó efna til prófkjörs í öllum kjördæmum dagana 20.-22. október og auglýsa eftir framboðum á lista.
Alma Möller landlæknir hyggst gefa kost á sér á lista Samfylkingarinnar fyrir komandi þingkosningar. Staðfesti Þórunn Sveinbjarnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, einnig að hún hygðist sækjast eftir forystusætinu á ný.
Þá tilkynnti Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, að hann byði sig fram á móti Þórunni.
Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.