Talsverð hreyfing er á fylgi stjórnmálaflokkanna í því ölduróti sem nú er uppi í íslenskum stjórnmálum. Þetta staðfesta nýjar tölur í könnun Prósents sem unnin er fyrir Morgunblaðið og kynntar eru í Spursmálum í dag kl. 14:00.

Þar mun Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, fara yfir tölurnar og hvað lesa megi í þær fylgisbreytingar sem merkjanlegar eru í kjölfar þess að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknar leystist upp fyrir augum þjóðarinnar um liðna helgi.
Í þættinum heyrir til annarra tíðinda. Þar munu þau Jón Gunnarsson og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir mætast í fyrsta sinn eftir að hún tilkynnti að hún hygðist etja kappi við hann um annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Þórdís er varaformaður flokksins og utanríkisráðherra en Jón Gunnarsson hefur gegnt ráðherraembættum fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.
Allt bendir til þess að það stefni í hjaðningavíg innan flokksins á sunnudag þegar kjördæmisráð flokksins í Suðvestur kemur saman til þess að kjósa um fjögur efstu sætin fyrir þingkosningarnar.
Þá munu þau Stefán Pálsson, sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi VG og Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir, aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar, einnig mæta til leiks og fara yfir stöðuna i landsmálunum.
Sneisafullur þáttur á dagskrá hjá mbl.is kl. 14:00 í dag. Ekki missa af honum. Spursmál eru heitasti þjóðmálavettvangur landsins um þessar mundir.