Fundi aftur frestað í kjaradeilu KÍ og SÍS

Kjaraviðræður | 22. október 2024

Fundi aftur frestað í kjaradeilu KÍ og SÍS

Fundi í kjaradeilu Kennarasambands Ísland (KÍ) og Sambands Íslenskra sveitarfélaga (SÍS) sem átti að fara fram í morgun var frestað.

Fundi aftur frestað í kjaradeilu KÍ og SÍS

Kjaraviðræður | 22. október 2024

Ekki má búast við fundi fyrr en niðurstaða félagsdóms liggur …
Ekki má búast við fundi fyrr en niðurstaða félagsdóms liggur fyrir. mbl.is/Golli

Fundi í kjaradeilu Kennarasambands Ísland (KÍ) og Sambands Íslenskra sveitarfélaga (SÍS) sem átti að fara fram í morgun var frestað.

Fundi í kjaradeilu Kennarasambands Ísland (KÍ) og Sambands Íslenskra sveitarfélaga (SÍS) sem átti að fara fram í morgun var frestað.

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, telur að ekki verði hægt að ná árangri í viðræðunum fyrr en niðurstaða félagsdóms um lögmæti verkfallsboðunar liggur fyrir. Þetta staðfestir Magnús við mbl.is. 

Fundi var einnig frestað í gær.

SÍS stefndi KÍ fyr­ir fé­lags­dóm vegna boðunar verkfallsaðgerða í tíu skól­um þann 29. októ­ber næst­kom­andi, en aðalmeðferð fór fram í málinu í gær.

Magnús tel­ur hins veg­ar að fé­lagið hafi verið í full­um rétti til að boða til verk­falla. Farið hafi verið að öll­um regl­um sem gilda um verk­föll.

Vonast til þess að niðurstaða félagsdóms liggi fyrir á næstu dögum.

mbl.is