Svo virðist sem íslenska OnlyFans-stjarnan Stefan Octavian Gheorghe hafi fundið ástina í örmum suðræns sjarmörs. Sá heppni kallar sig Maspalomas Guy á samfélagsmiðlum.

Stefan deildi sætri myndaseríu af parinu á Instagram-síðu sinni í morgunsárið og af myndum að dæma er parið ástfangið upp fyrir haus og að njóta hverrar mínútu í spænsku borginni Barselóna.
„Þú stalst hjarta mínu,” skrifar hann við færsluna.
Stefan ræddi við blaðamann mbl.is í apríl 2021 og sagði meðal annars frá upplifun hans af klámiðnaðinum.
„Ekki halda þetta sé eitthvað slæmt. Mér finnst leiðinlegt að fólk haldi að þetta sé bara dóp og rugl. Við erum með Óskarsverðlaun í þessu og ég hef farið á rauða dregilinn,“ segir Stefan.
„Fólk þarf að fara varlega. Ég mæli ekki endilega með að fólk fari út í klám en ef þetta er það sem fólk vill gera þá bara endilega. Vertu viss um að þú vitir hvað þú ert að gera.“