Norska krónprinsessan Mette-Marit er komin í veikindaleyfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku hirðinni.

Er ástæðan sögð vera erfiðar aukaverkanir vegna lyfjanotkunar, en krónprinsessan er á lyfjum vegna lungnasjúkdóms.
Mette-Marit var greind með krónískan lungnasjúkdóm, lungnatrefjun (e. pulmonary fibrosis), í október 2018. Sjúkdómurinn veldur óþarfri vefjamyndun í lungunum sem leiðir af sér að það dregur úr teygjanleika lungnablaðranna með tilheyrandi öndunarerfiðleikum.
Mette-Marit hefur verið undir álagi síðustu mánuði en sonur krónprinsessunnar, Marius Borg Høiby, var handtekinn í ágúst fyrir líkamsárás og aftur í september fyrir að brjóta nálgunarbann gegn fyrrverandi kærustu sinni.