Veitinga- og afþreyingarstaðurinn Oche Reykjavík sem er staðsettur á 3. hæð Kringlunnar býður meðal annars upp á pítsur á matseðlinum sem eru heimagerðar með aðstoð ítalskra pítsubakara. Pítsurnar hafa fallið vel í kramið hjá gestum staðarins.

„Síðustu sex mánuði höfum við unnið hörðum höndum að því að þróa einstakt og lauflétt pítsadeig,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri Oche Reykjavík.
„Tegundin af deiginu sem við notum kallast biga og er heimatilbúið, útbúið með tvöföldu gerjunarferli. Hveitið í pítsunum er ítölsk hágæðavara, sérstaklega búið til fyrir lengri gerjun en með því að láta deigið hefast tvisvar halda allir upprunalegu kostir hveitisins sér eftir bakstur. Við gerjunina myndast koltvísýringur og nokkurs konar net úr glúteni sem gerir deigið mun teygjanlegra en önnur. Útkoman er dúnmjúk pítsa að innan en jafnframt stökk pítsa sem við eldbökum til fullkomnunar," segir Davíð Lúther og bætir við að pítsurnar hafi fengið góðar viðtökur gesta staðarins.
„Síðustu vikur höfum við fengið mikið hrós frá okkar gestum og erum við greinilega búin að ná markmiði okkar með aðstoð ítalskra pítsubakara,“ segir Davíð Lúther ennfremur.