Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans deilir hér uppskrift af ofnbökuðum fisk með blaðlauk.
Marta María Arnarsdóttir skólameistari Hússtjórnarskólans deilir hér uppskrift af ofnbökuðum fisk með blaðlauk.
Uppskriftin kemur úr eldhúsinu í Húsó og þegar kemur að því að velja smurost í réttinn getur hver og einn valið þann sem honum þykir bestur.
Þetta er góður réttur til að njóta alla daga, meira segja á sunnudagskvöldi í góðum félagsskap
Ofnbakaður fiskur með blaðlauk
- 800 g fiskflök, ýsa eða þorskur
- 2 msk. sítrónusafi
- ½ tsk. salt
- 1 tsk. sítrónupipar
- 250 g smurostur (papriku, sveppa eða annar)
- ½ dl rjómi
- ½ dl vatn
- 1 dl brauðrasp
- ½ saxaður blaðlaukur (má skipta út fyrir rauðlauk)
- 2 msk steinselja
- 100 g rifinn ostur
- 60 g brætt smjör
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 190°C hita.
- Smyrjið eldfast mót.
- Gætið þess að fiskflökin séu roð- og beinhreinsuð.
- Skerið fiskflökin í jafnstór stykki og raðið í formið.
- Kreistið sítrónusafann yfir fiskinn ásamt salti og sítrónupipar.
- Bræðið saman smurostinn og rjómann ásamt vatninu í potti við vægan hita og hrærið í þar til úr verður jöfn sósa.
- Hellið blöndunni jafnt yfir fiskinn.
- Blandið brauðraspinum, blaðlauknum, steinseljunni, rifna ostinum og brædda smjörinu saman í skál.
- Dreifið brauðraspsblöndunni yfir fiskinn.
- Bakið í ofni í um það bil 20 mínútur við 190°C.
- Berið fram með grjónum eða kartöflum og góðu salati.