Listafólk landsins lögðu leið sína á opnun sýningar hjá Steingrími Eyfjörð í Listval. Mikil flóra fólks var við opnunina eins og til dæmis Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmaður, Eggert Pétursson listmálari, Helgi Þorgils og Rakel Halldórsdóttir og svo Sísí Ingólfsdóttir listakona og Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga. Þau voru ákaflega smart, bæði með hatta.

Sýningin ber heitið 1978 en þess má geta að Steingrímur fagnar í ár 50 ára myndlistarafmæli.
Fyrir sýninguna 1978 hefur Steingrímur Eyfjörð unnið með hugmyndir og handrit að verkum sem vísa til tímabilsins 1957 til 1981 í íslenskri listasögu.
Verkin á sýningunni eru hugleiðingar Steingríms um avant-garde tímabilið í íslenskri myndlistarsögu og hans persónulega sýn á listasögu þessa tíma. List um list, eða lifandi listasaga eins og hann kýs að kalla hana og þá sem mótvægi við opinbera listasögu.
Steingrímur Eyfjörð er jafnan talinn meðal hinna fremstu í þeirri kynslóð íslenskra listamanna sem fram kom á áttunda áratugi síðustu aldar. Í vinnu sinni nýtir hann sér fjölbreytta miðla, þar á meðal ljósmyndun, teiknimyndir, myndbönd, málun, skúlptúra, gjörningalist, skrif og innsetningar. Steingrímur var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2007.