Vopnaðir lögreglumenn við öllu búnir

Norðurlandaráðsþing 2024 | 28. október 2024

Vopnaðir lögreglumenn við öllu búnir

Viðbúnaður lögreglunnar er mikill í miðbæ Reykjavíkur vegna leiðtogafundar Norðurlandaráðs og komu Volodimírs Selenskís, forseta Úkraínu, hingað til lands.

Vopnaðir lögreglumenn við öllu búnir

Norðurlandaráðsþing 2024 | 28. október 2024

Vopnaðir lögreglumenn á gangi í morgun.
Vopnaðir lögreglumenn á gangi í morgun. mbl.is/Karítas

Viðbúnaður lögreglunnar er mikill í miðbæ Reykjavíkur vegna leiðtogafundar Norðurlandaráðs og komu Volodimírs Selenskís, forseta Úkraínu, hingað til lands.

Viðbúnaður lögreglunnar er mikill í miðbæ Reykjavíkur vegna leiðtogafundar Norðurlandaráðs og komu Volodimírs Selenskís, forseta Úkraínu, hingað til lands.

Vopnaður lögreglumaður stendur vörð við Alþingi.
Vopnaður lögreglumaður stendur vörð við Alþingi. mbl.is/Karítas

Ljósmyndari mbl.is var á ferðinni í morgun og smellti myndum af vopnuðum lögreglumönnum sem standa vörð, m.a. við Ráðhús Reykjavíkur og Alþingi.

Fjöldi lögreglumanna er að störfum í tengslum við fundinn.
Fjöldi lögreglumanna er að störfum í tengslum við fundinn. mbl.is/Karítas

Þingið fer fram á Alþingi og í Ráðhúsinu undir yfirskriftinni „Friður og öryggi á norðurslóðum“ og verður Ráðhúsið lokað almenningi næstu daga. 

mbl.is/Karítas

Í miðbænum er Vonarstræti lokað milli Lækjargötu og Suðurgötu. Templarasund og Kirkjustræti frá Pósthússtræti eru einnig lokuð, auk Tjarnargötu á milli Vonarstrætis og Kirkjustrætis.

mbl.is/Karítas
mbl.is/Karítas
Norðurlandafánar blakta við hún við Ráðhús Reykjavíkur.
Norðurlandafánar blakta við hún við Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Karítas
mbl.is