Harry og Meghan eru sögð vera að skoða það að kaupa eign nálægt smábænum Melides í Portúgal. Samband þeirra hefur verið áberandi í umræðunni að undanförnu en þau hafa verið búsett í Bandaríkjunum síðustu ár. Þau hafa ekki átt heimili í Evrópu frá því í mars í fyrra.

Melides þykir öruggt svæði þar sem fleiri auðkýfingar eiga sumarhús. Eugenie prinsessa og eiginmaður hennar, Jack Brooksbank, eiga hús nálægt svæðinu. Þau eru víst góðir vinir Harry og Meghan og eiga börn á sama aldri.
Franski hönnuðurinn Philippe Starck á hús á svæðinu en líka belgíski arkitektinn Vincent Van Duysen. Skóhönnuðurinn Christian Louboutin býr á svæðinu og opnaði fimm stjörnu hótel í bænum Vermelho rétt hjá.
Þetta þykir rólegt svæði við sjóinn, smekklegt þar sem handverk listamanna á svæðinu er áberandi. Melides er þrjátíu mínútum frá Comporta. Húsin eru nútímaleg en í Melides má finna nóg af ólífutrjám og fiskmarkað. Bærinn hefur stundum verið kallaður „Hampton's Portúgal“ en Hampton's í Ameríku er eitt vinsælasta og sennilega dýrasta sumarhúsasvæði landsins.