Umboðsmaður ítrekar fyrirspurn

Hvalveiðar | 29. október 2024

Umboðsmaður ítrekar fyrirspurn

Umboðsmaður Alþingis hefur með bréfi, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, ítrekað tilmæli sín til matvælaráðuneytisins um að ráðuneytið láti umboðsmanni í té þær upplýsingar og skýringar sem hann óskaði eftir í framhaldi af kvörtun Hvals hf. yfir stjórnsýslu matvælaráðherra og matvælaráðuneytisins við endurnýjun leyfis fyrirtækisins til veiða á hvölum sem gefið var út 11. júní sl. til eins árs. Bréfið var sent í sl. viku.

Umboðsmaður ítrekar fyrirspurn

Hvalveiðar | 29. október 2024

Hval­ur hf. hefur sótt um leyfi til mat­vælaráðuneyt­is­ins til veiða …
Hval­ur hf. hefur sótt um leyfi til mat­vælaráðuneyt­is­ins til veiða á langreyði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Umboðsmaður Alþingis hefur með bréfi, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, ítrekað tilmæli sín til matvælaráðuneytisins um að ráðuneytið láti umboðsmanni í té þær upplýsingar og skýringar sem hann óskaði eftir í framhaldi af kvörtun Hvals hf. yfir stjórnsýslu matvælaráðherra og matvælaráðuneytisins við endurnýjun leyfis fyrirtækisins til veiða á hvölum sem gefið var út 11. júní sl. til eins árs. Bréfið var sent í sl. viku.

Umboðsmaður Alþingis hefur með bréfi, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, ítrekað tilmæli sín til matvælaráðuneytisins um að ráðuneytið láti umboðsmanni í té þær upplýsingar og skýringar sem hann óskaði eftir í framhaldi af kvörtun Hvals hf. yfir stjórnsýslu matvælaráðherra og matvælaráðuneytisins við endurnýjun leyfis fyrirtækisins til veiða á hvölum sem gefið var út 11. júní sl. til eins árs. Bréfið var sent í sl. viku.

Umboðsmaður sendi matvælaráðuneytinu bréf þann 5. september sl. sem stílað var á þáverandi matvælaráðherra, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, þar sem óskað var eftir rökstuddri afstöðu ráðuneytisins til þess hvort meðferð þess á umsókn Hvals um leyfi til veiða á langreyðum samrýmdist grundvallarreglu stjórnsýsluréttar um málshraða með hliðsjón af hagsmunum fyrirtækisins í því efni.

Einnig var óskað skýringa ráðuneytisins á því af hverju umsagna um málið hefði ekki verið leitað fyrr en gert var, sem og hvers vegna óskað var eftir umsögnum 15 annarra aðila en Hafrannsóknastofnunar sem er eini lögbundni umsagnaraðilinn um leyfi til hvalveiða. Þá var og óskað skýringa á því af hverju veiðileyfi hefði aðeins verið gefið út til eins árs og hvaða málefnalegu sjónarmið hefðu legið til þess.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

mbl.is