„Sumir flokkar farnir að líkjast Rauðu djöflunum“

Alþingiskosningar 2024 | 30. október 2024

„Sumir flokkar farnir að líkjast Rauðu djöflunum“

„Sumir flokkar eru farnir að líkjast Rauðu djöflunum frá Manchester hvað liðskipan varðar.“

„Sumir flokkar farnir að líkjast Rauðu djöflunum“

Alþingiskosningar 2024 | 30. október 2024

Brynjar Níelsson liggur sjaldnast á skoðunum sínum um menn og …
Brynjar Níelsson liggur sjaldnast á skoðunum sínum um menn og málefni. mbl.is/Arnþór Birkisson

„Sumir flokkar eru farnir að líkjast Rauðu djöflunum frá Manchester hvað liðskipan varðar.“

„Sumir flokkar eru farnir að líkjast Rauðu djöflunum frá Manchester hvað liðskipan varðar.“

Þetta segir Brynjar Níelsson í færslu á Facebook. Hann skipar þriðja sæti á Sjálfstæðisflokksins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður fyrir komandi þingkosningarr en Brynjar sagði af sér sem varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í síðasta mánuði.

„Það hefur verið líflegt á hinu pólitíska markaðstorgi og menn hafa gengið kaupum og sölum sem aldrei fyrr áður en félagsskiptaglugganum var lokað. Flokkarnir hafa keypt leikmenn í gríð og erg sem erfitt er að sjá að geti leikið í sama liði enda með afar ólíka sýn hvernig spila eigi leikinn,“ segir Brynjar enn fremur í færslu sinni á Facebook.

 

 

mbl.is