23 prósenta aukning veiðigjalda

Veiðigjöld | 31. október 2024

23 prósenta aukning veiðigjalda

Íslenskar útgerðir greiddu tæplega 6,5 milljarða í veiðigjöld á fyrstu átta mánuðum þessa árs. Á sama tímabili í fyrra námu veiðigjöldin rétt rúmum sjö milljörðum króna, en þar af voru tæplega 1.784 milljónir vegna loðnu.

23 prósenta aukning veiðigjalda

Veiðigjöld | 31. október 2024

Veiðigjöldin hafa hækkað töluvert á undanförnum árum.
Veiðigjöldin hafa hækkað töluvert á undanförnum árum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Íslenskar útgerðir greiddu tæplega 6,5 milljarða í veiðigjöld á fyrstu átta mánuðum þessa árs. Á sama tímabili í fyrra námu veiðigjöldin rétt rúmum sjö milljörðum króna, en þar af voru tæplega 1.784 milljónir vegna loðnu.

Íslenskar útgerðir greiddu tæplega 6,5 milljarða í veiðigjöld á fyrstu átta mánuðum þessa árs. Á sama tímabili í fyrra námu veiðigjöldin rétt rúmum sjö milljörðum króna, en þar af voru tæplega 1.784 milljónir vegna loðnu.

Eins og flestum er kunnugt var engin loðnuvertíð síðastliðinn vetur og ef veiðigjöld eru skoðuð án gjalda vegna loðnuveiða voru þau á fyrstu átta mánuðum í fyrra 5,2 milljarðar. Innheimt gjöld án áhrifa loðnuveiða hafa því aukist um tæp 23% milli ára, að því er fram kemur í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.

Stærstu útgerðirnar greiða umtalsvert meira í veiðigjöld en smærri útgerðir þar sem 40% afsláttur er gefinn af fyrstu átta milljónunum. Af 912 gjaldskyldum útgerðum fyrstu átta mánuði 2024 greiddu 725 útgerðir innan við hálfa milljón í veiðigjöld og var samanlögð upphæð um 2,8% innheimtra veiðigjalda á tímabilinu.

 Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is