Bjarni reynir að höfða til unglinganna

Alþingiskosningar 2024 | 2. nóvember 2024

Bjarni reynir að höfða til unglinganna

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra bregður fyrir í TikTok-myndbandi ásamt dóttur sinni þar sem þau hlýða á vinsælasta unglingasmell landsins.

Bjarni reynir að höfða til unglinganna

Alþingiskosningar 2024 | 2. nóvember 2024

Yibbi Hell Yeah (Maggi Borða) hefur slegið í gegn á …
Yibbi Hell Yeah (Maggi Borða) hefur slegið í gegn á meðal unglinga landsins og að því er virðist einnig hjá forsætisráðherranum. Samsett mynd

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra bregður fyrir í TikTok-myndbandi ásamt dóttur sinni þar sem þau hlýða á vinsælasta unglingasmell landsins.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra bregður fyrir í TikTok-myndbandi ásamt dóttur sinni þar sem þau hlýða á vinsælasta unglingasmell landsins.

Þegar boðað er til kosninga með stuttum fyrirvara eru góð ráð dýr hvað varðar auglýsingapláss fyrir stjórnmálaflokkana, enda flest plássin uppurin í aðdraganda hrekkjavöku, jóla og svarts föstudags.

Hafa margir flokkanna brugðið á það ráð að höfða til kjósenda á samfélagsmiðlum með misgóðum árangri. 

Sló í gegn meðal táninga landsins

Sjálfstæðisflokkurinn virðist nú beina sjónum sínum að yngri kynslóðinni en flokkurinn birti í dag myndskeið af formanni flokksins ásamt dóttur hans, Helgu Þóru Bjarnadóttur, þar sem þau ganga saman með sitthvort heyrnartólið í eyranu.

Myndatökumaðurinn stöðvar þau og spyr hvað þau séu að hlusta á og kveðst Bjarni vera að hlusta á Yibbi Hell Yeah (Maggi Borða) eftir listamanninn Sif.

Flestir foreldrar, kennarar og starfsmenn frístundamiðstöðva kannast eflaust við lagið en það hefur slegið í gegn á meðal táninga landsins á samfélagsmiðlum.

mbl.is