Ferðaljósmyndarinn Ása Steinars er heldur betur tilbúin í veturinn og bíður hans með tilhlökkun. Hún er dugleg að ferðast með fjölskyldunni um landið og deildi nýjustu augnablikunum með 1,3 milljónum fylgjenda sinna á Instagram.

Nokkuð öruggt væri að segja að Ása sé einn þeirra áhrifavalda sem hefur hvað mestan fjölda fylgjenda á Instagram. Til að nefna dæmi þá er Rúrik Gíslason, sem er vinsæll á alþjóðavísu, með 795.000 fylgjendur.
Í færslunni segir Ása: „Baráttan milli hausts og vetrar: Hér er blanda af augnablikum úr nýjustu ferðum okkar. Á þessum árstíma hvílir ró yfir Íslandi, hvernig árstíðirnar haust og vetur skarast, hvor um sig reyna að taka völdin. Að endingu sigrar veturinn og ég er tilbúin fyrir hann.“
Í ferðunum segir Ása þau hafa gist í sendiferðabíl fjölskyldunnar, sem er sérútbúinn til ferðalaga, og að það hafi komið skemmtilega á óvart hve gott sé að dvelja í sendiferðabíl þegar svo langt er liðið á haustið.