Leiðtogi Írans heitir hefndum fyrir árás Ísraelshers á heilsugæslustöð í norðurhluta Gasa í gær.
Leiðtogi Írans heitir hefndum fyrir árás Ísraelshers á heilsugæslustöð í norðurhluta Gasa í gær.
Leiðtogi Írans heitir hefndum fyrir árás Ísraelshers á heilsugæslustöð í norðurhluta Gasa í gær.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) greindi frá því að fjögur börn hefðu verið meðal sex einstaklinga sem særðust í loftárásinni þar sem bólusetningar við mænusótt eru um þessar mundir framkvæmdar.
„Óvinirnir, bæði Bandaríkin og síonistastjórnin, ættu að vita að þeir eiga von á hörðum viðbrögðum,“ sagði æðsti klerkur Írans, Ali Khameini.
26. október gerði Ísraelsher árás á hernaðarleg skotmörk í Íran. Fjórir hermenn létu lífið. Árásin var viðbragð við árás Írans 1. október þar sem rúmlega 200 flugskeytum var skotið á loft.
Ísraelsmenn hafa varað Írani við því að bregðast við árásinni sem var gerð 26. október. Sérfræðingar segja að Ísrael hafi valdið miklum skaða á loftvörnum og vopnabúri Írana með árásinni.