Föstudagskvöldið síðastliðið var sannkölluð partý stemning er Gina Tricot opnaði verslun sína í Smáralind.

Aðdáendur vörumerkisins voru sumir hverjir mættir fjórum klukkustundum fyrir opnun og hleypa þurfti inn í hollum þegar verslunin var opnuð á slaginu átta.
Áhrifavaldarnir Sunneva Einarsdóttir, Brynhildur Gunnlaugsdóttir, Sara Jasmín Sigurðardóttir og Birta Líf opnuðu verslunina með pompi og prakt.
Netverslun Gina Tricot opnað hérlendis í mars í fyrra. Síðar á árinu opnuðu verslanir vörumerkisins í Kringlunni og á Glerártorgi, Akureyri. Nú hefur Smáralind bæst í Flóruna.
Um 9.000 manns voru viðstaddir opnunina og gátu notið léttra veitinga við dúndrandi tónlist dj Guðnýjar.