Davíð Freyr kom, sá og sigraði í kökukeppninni

Bakstur | 4. nóvember 2024

Davíð Freyr kom, sá og sigraði í kökukeppninni

Davíð Freyr Jóhannsson frá Mosfellsbakarí sigraði Puratos kökukeppnina sem fram fór síðastliðinn fimmtudag með safaríka sítrónuköku með sítrónu Smoobees. Að sögn dómnefndar var það einfaldleikinn sem heillaði og sítrónubragðið á kökunni sem fékk að njóta sín.

Davíð Freyr kom, sá og sigraði í kökukeppninni

Bakstur | 4. nóvember 2024

Sigurvegarar keppninnar ásamt tveimur úr dómnefndinni, Schmidt Mads Viborg, Karen …
Sigurvegarar keppninnar ásamt tveimur úr dómnefndinni, Schmidt Mads Viborg, Karen Lilja Sveinsdóttir, Davíð Freyr Jóhannesson, Sigrún Sól Vigfúsdóttir og Kenneth Baker. mbl.is/Karítas

Davíð Freyr Jóhannsson frá Mosfellsbakarí sigraði Puratos kökukeppnina sem fram fór síðastliðinn fimmtudag með safaríka sítrónuköku með sítrónu Smoobees. Að sögn dómnefndar var það einfaldleikinn sem heillaði og sítrónubragðið á kökunni sem fékk að njóta sín.

Davíð Freyr Jóhannsson frá Mosfellsbakarí sigraði Puratos kökukeppnina sem fram fór síðastliðinn fimmtudag með safaríka sítrónuköku með sítrónu Smoobees. Að sögn dómnefndar var það einfaldleikinn sem heillaði og sítrónubragðið á kökunni sem fékk að njóta sín.

Puratos kökukeppnin var á vegum ÓJK-ÍSAM og var haldin á Stóreldhússýningunni í Laugardalshöllinni sem stóð yfir dagana 31. október til 1. nóvember.

Davíð Freyr með verðlaunakökuna, safaríka sítrónuköku með sítrónu Smoobees.
Davíð Freyr með verðlaunakökuna, safaríka sítrónuköku með sítrónu Smoobees. mbl.is/Karítas

Alls voru 18 kökur sendar inn, en keppnisfyrirkomulagið var með þeim hætti að kakan átti að vera fyrir að lágmarki 6 til 8 manns og innihalda a.m.k. tvær Puratos vörur. Frjálst var með útlit á kökurnar, en kakan átti að vera einföld og getað þolað að standa í kaffistofunni án þess að vera í kæli. Keppnisrétt höfðu allir þeir sem eru lærðir bakarar, konditorar, matreiðslumenn eða á námssamningi í þessum greinum.

Sigrún Sól Vigfúsdóttir með ljúffenga saltkaramelluköku.
Sigrún Sól Vigfúsdóttir með ljúffenga saltkaramelluköku. mbl.is/Karítas
Karen Lilja Sveinsdóttir með kanil-karamellu kaka með ástaraldin og smjörkremi.
Karen Lilja Sveinsdóttir með kanil-karamellu kaka með ástaraldin og smjörkremi. mbl.is/Karítas

Þátttakan vonum framar

Þátttakan í keppninni var með vonum framar og virkilega gaman að sjá hversu margir tóku þátt. Metnaðurinn hjá keppendum var mikill og ljóst að þeir sem eru í þessum faggreinum blómstra í dag,“ segir Eggert Jónsson viðskiptastjóri hjá ÓKJ-ÍSAM.

Það var samdóma álit allra og dómnefndarinnar að þetta hafi verið mjög skemmtileg kökukeppni og fjölbreytnin hafi komið á óvart.

Þessi skipuðu í þrjú efstu sætin

  1. sæti með 24,1 stig var Davíð Freyr Jóhannsson Mosfellsbakarí með safaríka sítrónuköku með sítrónu Smoobees.
  2. sæti með 23,7 stig var Sigrún Sól Vigfúsdóttir frá Bakarameistaranum með saltkaramelluköku.
  3. sæti með 23 stig var Karen Lilja Sveinsdóttir  frá Gulla Arnar bakara með kanil-karamellu kaka með ástaraldin og smjörkremi.

Stig voru gefin fyrir bragð (60%), útlit (30 %) og uppbygging á köku og frágang á uppskrift (10%).

Dómarasettið Schmidt Mads Viborg frá Puratos, Kenneth Baker frá Puratos …
Dómarasettið Schmidt Mads Viborg frá Puratos, Kenneth Baker frá Puratos og Sjöfn Þórðardóttir frá Morgunblaðinu, umsjónarmaður Matarvefs mbl.is. Ljósmynd/Eggert Jónsson

Dómnefnd skipuðu þau:

  • Schmidt Mads Viborg frá Puratos
  • Kenneth Baker frá Puratos
  • Sjöfn Þórðardóttir frá Morgunblaðinu, umsjónarmaður Matarvefs mbl.is
Gestir sýningarinnar fengu að njóta kræsingana sem tóku þátt. Alls …
Gestir sýningarinnar fengu að njóta kræsingana sem tóku þátt. Alls 18 kökur kepptu um að vera bestar. mbl.is/Karítas
Davíð Freyr var ánægður með viðurkenninguna.
Davíð Freyr var ánægður með viðurkenninguna. mbl.is/Karítas
Sigrún Sól tekur á móti sínum verðlaunum.
Sigrún Sól tekur á móti sínum verðlaunum. mbl.is/Karítas
mbl.is