Drónaeftirlit verður einnig í nóvember

Eftirlit með veiðum | 4. nóvember 2024

Drónaeftirlit verður einnig í nóvember

Fiskistofa vekur í tilkynningu áathygli á því að eftirlitsmenn á vegum stofnunarinnar munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í nóvember Stofnunin minnir reglulega á að eftirlit er viðhaft með slíkum hætti.

Drónaeftirlit verður einnig í nóvember

Eftirlit með veiðum | 4. nóvember 2024

Fiskistofa mun hafa eftirlit með drónum í nóvember.
Fiskistofa mun hafa eftirlit með drónum í nóvember. mbl.is/Árni Sæberg

Fiskistofa vekur í tilkynningu áathygli á því að eftirlitsmenn á vegum stofnunarinnar munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í nóvember Stofnunin minnir reglulega á að eftirlit er viðhaft með slíkum hætti.

Fiskistofa vekur í tilkynningu áathygli á því að eftirlitsmenn á vegum stofnunarinnar munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í nóvember Stofnunin minnir reglulega á að eftirlit er viðhaft með slíkum hætti.

„Viljum við minna á að allar upptökur eru skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur. Fiskistofa vil því biðja sjómenn og útgerðaraðila að kynna sér vel reglur og lög um stjórn fiskveiða.“ segir í tilkynningunni sem birt var á vef stofnunarinnar.

Minnir Fiskistofa á að:

  • Óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur.
  • Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.
  • Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.
  • Sleppa á grásleppu sem fæst í  þorskfiskanet.
  • Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.
  • Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.
  • Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.
  • Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.
mbl.is