Systir bandaríska tónlistarmannsins Prince, Tyka Nelson, er látin 64 ára að aldri. Sonur Nelson, President Nelson, staðfesti andlát móður sinnar í samtali við Minnesota Star Tribune á þriðjudag.

Dánarorsök liggur ekki fyrir en Nelson hafði glímt við veikindi síðustu mánuði.
Líkt og bróðir hennar heitinn og foreldrar var Nelson afburða tónlistarmaður. Hún gaf út fjórar hljómplötur á árunum 1988 til 2011.
Nelson var eina alsystkini Prince, en tónlistarmaðurinn átti þrjár hálfsystur og fjóra hálfbræður.
https://www.mbl.is/folk/frettir/2016/04/21/prince_er_latinn/
Prince fannst látinn á heimili sínu í Chanhassen í Minnesota þann 21. apríl 2016. Hann var 57 ára gamall. Tónlistarmaðurinn lést úr ofskammti verkjalyfsins fentanýl.