Kaldvík, stærsta laxeldisfyrirtæki á Íslandi, og norska tæknifyrirtækið Aquabyte hafa hafið samstarf, en norska fyrirtækið sérhæfir sig í gagnadrifnum eftirlitskerfum fyrir fiskeldi.

Fram kemur í fréttatilkynningu að Kaldvík mun innleiða Aquabyte-kerfi á sínum eldissvæðum og í samstarfi munu fyrirtækin þróa lausnir sem merkmið er um að verði sniðnar að þörfum íslensks laxeldis.
„Við völdum Aquabyte eftir ítarlegan samanburð á kerfum á markaðnum. Ákvörðun okkar byggðist á getu Aquabyte til að skara fram úr á fjórum lykilsviðum: velferðareftirliti, lífmassamælingu, eftirfylgni við afhendingar og nákvæmni við talningu á lús,“ segir Kjartan Lindbøl, framkvæmdastjóri sjóeldis hjá Kaldvík, í tilkynnignunni.
„Fyrir okkur var mikilvægt að skapa sterkt samband á milli allrar okkar starfsemi og birgjans sem við myndum vinna með. Á þessu sviði stóð Aquabyte sig betur en önnur fyrirtæki sem voru borin saman,“ segir Kjartan.
Með áætlaða framleiðslu upp á 17.500 tonn árið 2024 er Kaldvík (áður Ice Fish Farm) stærsti framleiðandi eldislax á Íslandi. Kaldvík rekur átta eldissvæði sem eru staðsett á austurlandi auk tveggja seiðastöðva á landi. Fyrirtækið er skráð á Euronext Growth Oslo og Nasdaq First North Growth Market á Íslandi.
„Við erum spennt að hefja þetta samstarf við Kaldvík. Þetta er framsækið fyrirtæki sem skilur mikilvægi gagna og þann virðisauka sem gagnadrifin nálgun veitir í fiskeldi,“ segir Kamilla Svindseth, sölustjóri hjá Aquabyte, en Kaldvík er þegar farið að innleiða Aquabyte-kerfi á sínum eldissvæðum og er lagt upp með að hafa kerfi í hverri kví.
„Með því að deila gögnum og þekkingu verða fyrirtækin tvö í einstakri stöðu til að þróa gagnadrifin eftirlits- og ákvarðanakerfi enn frekar, sem takast á við einstakar líffræðilegar og landfræðilegar áskoranir við eldi á Íslandi,“ útskýrir Svindseth.