Stórfengleg kaupstefna og fagsýning af bestu gerð

Bakstur | 5. nóvember 2024

Stórfengleg kaupstefna og fagsýning af bestu gerð

Kaupstefnan Südback er ein sú mikilvægasta fyrir bakarí og kökugerð sem og sælkeraverslun í Evrópu og er mjög eftirsótt. Kaupstefnan Südbak var haldin í 30. skipti í Stuttgart dagana 26.-29. október síðastliðinn. 

Stórfengleg kaupstefna og fagsýning af bestu gerð

Bakstur | 5. nóvember 2024

Bernd Kütscher yfirskólastjóri þýsku bakaraskólana og yfirdómari, Andreas Kofler sem …
Bernd Kütscher yfirskólastjóri þýsku bakaraskólana og yfirdómari, Andreas Kofler sem var framkvæmdastjóri bakararsambandsins í Baden & Württemberg Reutlingen og hugmyndasmiður sýningarinnar, Sigurður Már formaður LABAK og Stefan Körber núverandi framkvæmdastjóri. Ljósmynd/Aðsend

Kaupstefnan Südback er ein sú mikilvægasta fyrir bakarí og kökugerð sem og sælkeraverslun í Evrópu og er mjög eftirsótt. Kaupstefnan Südbak var haldin í 30. skipti í Stuttgart dagana 26.-29. október síðastliðinn. 

Kaupstefnan Südback er ein sú mikilvægasta fyrir bakarí og kökugerð sem og sælkeraverslun í Evrópu og er mjög eftirsótt. Kaupstefnan Südbak var haldin í 30. skipti í Stuttgart dagana 26.-29. október síðastliðinn. 

Hópur íslenskra fagmanna lét sig ekki vanta á þennan frábæra viðburð. Südback er ein eftirsóttasta vörusýning fyrir bakarí og kökugerðir í Evrópu. Sýningin er alltaf haldin í Stuttgart og er haldin tvö ár í röð á milli IBA sem er heimssýningin sem haldin er þriðja hvert ár. Þar er miðstöð hugmyndaskipta, skoðana og upplýsinga sem og kynningar á straumum, stefnum, þróun og tækninýjungum í greinunum.

Listrænar kræsingar prýddu sýninguna víðs vegar.
Listrænar kræsingar prýddu sýninguna víðs vegar. Samsett mynd

Laða að gesti alls staðar úr heiminum

Meðal þess sem gert er á sýningunni er að veita verðlaun og viðurkenningar til fagaðila sem skara fram úr.

Sigurður Már Guðjónsson formaður Landssambands bakarameistara fór á sýninguna og sagði að mikil eftirvænting hafi ríkt um hver myndi hljóta verðlaunin í ár. „Þetta eru verðlaunin „Bakers Trend Forum”, „Confectioners Trend Forum“ og „Südback Trend“ sem ávallt eru veitt á sýningunni. Hér er um afar vinsæl verðlaun að ræða og þykir mikill heiður fyrir þau sem hljóta. Nýstárleg vöruþróun hvað varðar tækni, hönnun og hugmyndafræði tengd greinunum er heiðruð á sýningunni. Hágæða fyrirlestrar og baksturssýningar laða að marga gesti alls staðar úr heiminum,“ segir Sigurður Már aðspurður.

Brauðið fékk á njóta sín á sýningunni og ljóst að …
Brauðið fékk á njóta sín á sýningunni og ljóst að bakarar eru farnir að sýna meira af sínum listrænu hæfileikum við baksturinn. Ljósmynd/Sigurður Már

560 fyrirtæki allt frá rótgrónum markaðsleiðandi fyrirtækjum til sprotafyrirtækja kynntu sig í sex sýningarhöllum á þessum dögum. Fyrirtækin kynntu nýjungar í vinnu- og rekstrartækni, hráefni, innréttingum, tækjum, sölutækni og þjónustu fyrir u.þ.b. 35.000 gestum.

Fimm megin ástæður fyrir fagmenn

Að sögn Sigurðar Más eru fimm megin ástæður fyrir því að fagmenn sækja Südback kaupstefnuna heim:

  1. Upplifun og aukin innsýn, ásamt mörgum nýjungum í bakaraiðn og kökugerð.
  2. Aukið tengslanet.
  3. Dýpka sérfræðiþekkingu sína.
  4. Prófa og bera saman hráefni og vélar í návígi.
  5. Aukinn innblástur og nýjungar fyrir fyrirtækin.

Áhersla Südback 2024 var sameiginleg þróun handverks. Lifandi sýnikennsla, vinnustofur og hagnýtar umræður gerðu viðskiptagestum kleift að upplifa nýjar vörur og strauma í návígi og prófa þær sjálfir.

„Bakarar eru nú farnir að horfa til heimssýningarinnar IBA 2025 sem haldin verður í Düsseldorf 18.-22. maí á næsta ári. En þangað mun Ísland senda lið til að keppa á heimsmeistaramótinu í bakaraiðn,“ segir Sigurður að lokum.

Sjáið myndaveisluna.

Fangar bæði augu og munn.
Fangar bæði augu og munn. Ljósmynd/Sigurður Már
Nýstárlegar pítsur.
Nýstárlegar pítsur. Ljósmynd/Sigurður Már
Ýmis konar brauðgóðgæti var í boði.
Ýmis konar brauðgóðgæti var í boði. Ljósmynd/Sigurður Már
Hið fræga croissant með nýrri útfærslu.
Hið fræga croissant með nýrri útfærslu. Ljósmynd/Sigurður Már
Marsipan fígúrur.
Marsipan fígúrur. Ljósmynd/Sigurður Már
Allt fyrir augað.
Allt fyrir augað. Ljósmynd/Sigurður Már
Virðuleg tæki og tól prýddu sýninguna sem rifjuðu upp gömlu …
Virðuleg tæki og tól prýddu sýninguna sem rifjuðu upp gömlu tímana. Ljósmynd/Sigurður Már
Gömlu og nýju tímarnir mætast.
Gömlu og nýju tímarnir mætast. Ljósmynd/Sigurður Már
mbl.is