Bylgja Bára og Rúnar Bragi setja íbúðina á sölu

Heimili | 6. nóvember 2024

Bylgja Bára Bragadóttir sölustjóri hjá A4 og Rúnar Bragi Guðlaugsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ hafa sett sína huggulegu íbúð á sölu. Um er að ræða 117 fm íbúð sem er í húsi sem reist var 2020.

Rúnar Bragi Guðlaugsson og Bylgja Bára Bragadóttir hafa sett íbúð …
Rúnar Bragi Guðlaugsson og Bylgja Bára Bragadóttir hafa sett íbúð sína á sölu. Samsett mynd

Bylgja Bára Bragadóttir sölustjóri hjá A4 og Rúnar Bragi Guðlaugsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ hafa sett sína huggulegu íbúð á sölu. Um er að ræða 117 fm íbúð sem er í húsi sem reist var 2020.

Bylgja Bára Bragadóttir sölustjóri hjá A4 og Rúnar Bragi Guðlaugsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ hafa sett sína huggulegu íbúð á sölu. Um er að ræða 117 fm íbúð sem er í húsi sem reist var 2020.

Í íbúðinni er að finna nýtískulegar innréttingar. Eldhús er að hluta til opið inn í stofu og eru vandaðar innréttingar í eldhúsinu. Eldhúsinnréttingin er L-laga með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Ljósar borðplötur eru á innréttingar og flísar upp á hálfan vegginn. Í eldhúsinu er pláss fyrir eldhúsborð. 

Vínyl-parket er á gólfum og er gengið út á tvennar svalir úr stofunni. Hvítar innihurðar eru í íbúðinni. 

Heimilið er búið notalegum húsgögnum og er hver hlutur á sínum stað. 

Sjá nánar á fasteignavef mbl.is: Bjarkarholt 29

Í eldhúsinu eru sérsmíðaðar innréttingar með hvítum efri skápum.

Hjónin eru með dökkt barborð í eldhúsinu sem er í …
Hjónin eru með dökkt barborð í eldhúsinu sem er í stíl við innréttinguna í eldhúsinu.
Í stofunni eru hlýlegir sófar með flauelsáklæði og íburðarmikið glerborð.

mbl.is