Camilla Bretadrottning og eiginkona Karls konungs III hefur dregið sig úr öllum opinberum viðburðum á næstunni eftir að hún veiktist af sýkingu í brjósti. Þetta kom fram í tilkynningu frá Buckingham-höll.

Camilla átti að koma fram á hinni árlegu minningarathöfn í Westminister Abbey sem fram fer 7. nóvember. Staðgengill hennar á athöfninni mun vera Birgitte hertogaynja af Gloucester.
Mikið hefur verið um veikindi í Buckingham-höll. Karl Bretakonungur greindist með krabbamein í febrúar á þessu ári og hefur verið í lyfjameðferð vegna sjúkdómsins.
Vilhjálmur Bretaprins og Katrín prinsessa af Wales hafa nýlega snúið aftur til starfa eftir að Katrín lauk lyfjameðferð vegna krabbameins, en hún greindi frá því fyrr á árinu. Katrín gaf út yfirlýsingu í lok sumars þar sem hún sagði: „Nú þegar sumarið er að líða undir lok get ég ekki lýst því hversu mikill léttir það er að hafa loksins lokið lyfjameðferðinni.“
Þá var Anna prinsessa, yngri systir Karls III, lögð inn í fimm daga á Southmead-sjúkrahúsið í sumar vegna heilahristings. Óhapp á landareign hennar í Gatcombe Park varð til þess að hún meiddist á höfði.