Fá mat frá Múlakaffi á kjördag

Alþingiskosningar 2024 | 7. nóvember 2024

Fá mat frá Múlakaffi á kjördag

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að ganga að tilboði Múlakaffis í veitingaþjónustu vegna starfsfólks við þingkosningarnar í lok mánaðarins. Tvö tilboð bárust í verðfyrirspurn borgarinnar, annars vegar frá Múlakaffi upp á 9.900 krónur fyrir hvern einstakling með virðisaukaskatti, og hins vegar upp á 10.290 krónur frá Kokkunum.

Starfsfólk í kjörstjörnum fær þrjár máltíðir frá Múlakaffi.
Starfsfólk í kjörstjörnum fær þrjár máltíðir frá Múlakaffi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að ganga að tilboði Múlakaffis í veitingaþjónustu vegna starfsfólks við þingkosningarnar í lok mánaðarins. Tvö tilboð bárust í verðfyrirspurn borgarinnar, annars vegar frá Múlakaffi upp á 9.900 krónur fyrir hvern einstakling með virðisaukaskatti, og hins vegar upp á 10.290 krónur frá Kokkunum.

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að ganga að tilboði Múlakaffis í veitingaþjónustu vegna starfsfólks við þingkosningarnar í lok mánaðarins. Tvö tilboð bárust í verðfyrirspurn borgarinnar, annars vegar frá Múlakaffi upp á 9.900 krónur fyrir hvern einstakling með virðisaukaskatti, og hins vegar upp á 10.290 krónur frá Kokkunum.

Eva Bergþóra Guðbergsdóttir samskiptastjóri Reykjavíkurborgar segir í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins að annars vegar sé um að ræða mat fyrir 600 manns sem verða í undirkjörstjórnum og hverfiskjörstjórnum á þeim 25 kjörstöðum sem verða í Reykjavík suður og Reykjavík norður. Þá verða keyptar máltíðir fyrir um tvö hundruð manns sem vinna við talningu í Laugardalshöll.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

mbl.is