Selenskí: N-Kórea heyir stríð í Evrópu

Norður-Kórea | 7. nóvember 2024

Selenskí: N-Kórea heyir stríð í Evrópu

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að Norður-Kórea heyi nú stríð í Evrópu. 

Selenskí: N-Kórea heyir stríð í Evrópu

Norður-Kórea | 7. nóvember 2024

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu.
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu. AFP

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að Norður-Kórea heyi nú stríð í Evrópu. 

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að Norður-Kórea heyi nú stríð í Evrópu. 

Forsetinn vísar þar til frétta af því að norðurkóresk stjórnvöld hafi sent 10.000 manna herlið til Rússlands til að styðja við stríðsrekstur þeirra í Úkraínu. 

„Norður-Kórea er núna, í raun, að heyja stríð í Evrópu. Norðurkóreskir hermenn reyna að drepa okkar fólk á evrópskri grundu,“ sagði Selenskí á leiðtogafundi Evrópuríkja sem fer fram í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands. 

mbl.is