Snorri mætti í sérsaumuðum jakkafötum

Klæðaburður þingmanna | 8. nóvember 2024

Snorri mætti í sérsaumuðum jakkafötum

Snorri Másson fjölmiðlamaður mætti í oddvitaviðtal við Morgunblaðið hjá Andrési Magnússyni á dögunum en hann leiðir Miðflokkinn í Reykjavík suður í komandi alþingiskosningum. Snorri, sem er iðulega snyrtilegur til fara, mætti í sérsaumuðum jakkafötum frá íslenska fyrirtækinu Suitup.

Stíliseringin var úthugsuð hjá Snorra.
Stíliseringin var úthugsuð hjá Snorra. mbl.is/Ágúst

Snorri Másson fjölmiðlamaður mætti í oddvitaviðtal við Morgunblaðið hjá Andrési Magnússyni á dögunum en hann leiðir Miðflokkinn í Reykjavík suður í komandi alþingiskosningum. Snorri, sem er iðulega snyrtilegur til fara, mætti í sérsaumuðum jakkafötum frá íslenska fyrirtækinu Suitup.

Snorri Másson fjölmiðlamaður mætti í oddvitaviðtal við Morgunblaðið hjá Andrési Magnússyni á dögunum en hann leiðir Miðflokkinn í Reykjavík suður í komandi alþingiskosningum. Snorri, sem er iðulega snyrtilegur til fara, mætti í sérsaumuðum jakkafötum frá íslenska fyrirtækinu Suitup.

Jakkafötin voru dökkblá að lit og kosta í kringum 120 þúsund krónur samkvæmt vefverslun Suitup. Það var allt úthugsað hjá Snorra en við fötin var hann í ljósblárri skyrtu, með köflótt bindi og vínrauðan vasaklút. Glöggir gætu einnig tekið eftir því að það er rautt í bindinu sem rímar við lit vasaklútsins.

Á heimasíðu Suitup kemur fram að fötin séu úr 100% ull. Dökkblá sérsaumuð föt frá þeim kosta á bilinu 109 þúsund krónur til 119 þúsund króna. Þá eru flest efnin þeirra 280 gr/ en það segir til um þyngd efnisins. 

Snorri leiðir Miðflokkinn í Reykjavík.
Snorri leiðir Miðflokkinn í Reykjavík. mbl.is/Ágúst
Svipuð föt á heimasíðu Suitup.
Svipuð föt á heimasíðu Suitup.
mbl.is