Bandaríska leikkonan Anna Kendrick gaf heildarupphæð launanna sem hún þénaði við gerð kvikmyndarinnar, Woman of the Hour, um konu sem fer á stefnumót með karli sem reynist vera raðmorðingi, til hjálparsamtaka þolenda kynferðisofbeldis.

Kendrick, 39 ára, viðurkenndi í samtali við þáttastjórnanda hlaðvarpsins Crime Junkie að henni hafi þótt óviðeigandi að hagnast fjárhagslega á kvikmyndaverkefninu, sem er byggt á sönnum atburðum.
Kendrick, þekktust fyrir leik sinn í kvikmyndum á borð við Twilight, Pitch Perfect og Up in the Air, leikstýrði og fór með aðalhlutverkið í Woman of the Hour. Myndin var frumsýnd fyrir fullum sal á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í byrjun september og hefur nú verið tekin til sýninga á streymisveitunni Netflix.
„Ég leit aldrei á þetta verkefni sem leið til þess að þéna pening,“ sagði Kendrick þegar hún útskýrði þær ástæður sem lágu að baki ákvörðuninni. „Ég vildi ekki græða á áfallasögum fórnarlamba Rodney Alcala og þegar ég áttaði mig loks á því að kvikmyndin ætti eftir að græða peninga þá spurði ég sjálfa mig einnar spurningar: „Finnst þér ógeðslegt að græða á þessu? Og já, mér fannst það.“
Kendrick gaf laun sín til tveggja stærstu hjálparsamtaka þolenda kynferðisofbeldis, RAINN (e. Rape, Abuse & Incest National Network) og National Centre for Victims of Violent Crime.