Rúmlega helmingur aðspurðra telur óeðlilegt að ráðherra í starfsstjórn gefi út nýtt leyfi til veiða á langreyðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúruverndarsamtökum Íslands en þar segir frá nýrri könnun Maskínu þar sem niðurstaðan var þessi:
51% svöruðu að umrædd leyfisveiting væri óeðlileg. Tæp 30% sögðu hana eðlilega en 19% tóku ekki afstöðu til spurningarinnar.
„Það væri afar sérkennileg stjórnsýsla að, Bjarni Benediktsson starfandi matvælaráðherra í starfsstjórn, gæfi út leyfi til veiða á langreyðum til næstu 5 eða 10 ára samkvæmt lögum sem hafa staðið óbreytt í 75 ár og virti þar með að vettugi vinnu starfshóps um hvernig megi færa lög um hvalveiðar í átt til nútímans,“ segir í tilkynningu Náttúruverndarsamtaka Íslands.
Þar segir einnig að slík ákvörðun myndi binda hendur íslenskra stjórnvalda jafn lengi og hugsanlegt leyfi gildir. Slík ákvörðun standist ekki kröfur um nútíma stjórnsýsluhætti.